Þú ert hér: Forsíða
  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size

Félag umhverfisfræðinga

copy of img_1956.jpg

Félag umhverfisfræðinga

Maí18

Dagur umhverfisins

Tileinkaður líffræðilegri fjölbreytni

Dagur umhverfisins er haldinn 25. apríl ár hvert en þann dag árið 1762 fæddist Sveinn Pálsson, fyrsti íslenski náttúrufræðingurinn. Hann var einna fyrstur til að hvetja til aðgerða gegn skógareyðingu á Íslandi og orðaði þá hugsun sem nú kallast sjálfbær þróun. Í ár var dagurinn tileinkaður líffræðilegri fjölbreytni.

Félag umhverfisfræðinga á Íslandi, í samstarfi við Fuglavernd og Umhverfisráðuneyti, bauð upp á gönguferð í kringum Reykjavíkurtjörn og Vatnsmýri undir leiðsögn Hallgríms Gunnarssonar og Ólafs Torfasonar hjá Fuglavernd og Haraldar Rafns Ingvasonar frá Náttúrfræðistofu Kópavogs þar sem fræðst var um líffræðilega fjölbreytni í og við tjörnina, þar á meðal fuglalíf og gróður. Góður fjöldi fólks mætti þennan dag og fræddist um vistkerfi Tjarnarinnar í mildu veðri.

Félag umhverfisfræðinga vill þakka þeim Hallgrími, Ólafi og Haraldi fyrir skemmtilega og fræðandi leiðsögn.

 
Mar25

Bloggar þú um umhverfið?

Ritstjórn vill benda félagsmönnum FUMÍ á nýjan lið á heimasíðu félagsins sem kallast Félagsmenn og er undir Tenglar

Þar er m.a tengill á hjóladagbók Björns H. Barkarsonar þar sem hægt er að fræðast um ferðalög hans til og frá vinnu, sjón er sögu ríkari.

Óskar ritsjórn eftir ábendingum um önnur álíka blogg félagsmanna. Ábendingar má senda á  This e-mail address is being protected from spambots, you need JavaScript enabled to view it

Ritstjórn

 
Mar24

Rammaáætlun - kynningarfundur

Frjálsum félagasamtökum og FUMÍ er boðið til sérstaks kynningarfundar um niðurstöður Rammaáætlunar föstudaginn 26.mars kl. 11:10-13:30 í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins. Á fundinum munu formenn faghópa 2. áfanga Rammáætlunar kynna niðurstöður og í kjölfarið verður fyrirspurnum svarað.

 

Á vefsíðu Rammaáætlunar má sjá skýrslu verkefnisstjórnar. Skýrslan er til umsagnar í opnu umsagnarferli um niðurstöður faghópa sem stendur til 19. apríl.  

 

 

 
Mar16

Stefnumót við brautskráða nemendur


Þann 25. mars kl 20:30 á Restaurant Reykjavík munu þrír nýlega brautskráðir stúdentar frá umhverfis- og auðlindafræði HÍ kynna niðurstöður verkefna sinna á spjallfundi með  Félagi umhverfisfræðinga á Íslandi.

Stefnt er á létta stemningu og góðar umræður. Kaffi í boði félagsins.

Eftirtalin erindi verða haldin:

Herdís Sigurjónsdóttir -  Hlutverk sveitarstjórna eftir náttúruhamfarir og önnur samfélagsleg áföll - Greining á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga í skipulagi almannavarna

Hlynur Bárðarson og Karen Pálsdóttir - Flokkun íslensks landslags með aðferðum Íslenska landslagsverkefnisins og samanburður náttúruperla og annars landslags með sömu aðferðum

Við hvetjum alla félagsmenn til að mæta.

Bestu kveðjur
Stjórn FUMÍ

 

Á döfinni

Morgunverðarfundur með fyrirtækjum um tungutak umhverfismála og umhverfisvæn skref. Nánar auglýst síðar.  


BBC - Umhverfis- og vísindafréttir