Þú ert hér: Forsíða Greinar Möguleikar og aðgerðir í loftslagsmálum á Íslandi
  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size

Félag umhverfisfræðinga

IMG_8803.jpg

Möguleikar og aðgerðir í loftslagsmálum á Íslandi

Föstudaginn 27. nóvember hélt Dr. Brynhildur Davíðsdóttir, dósent við Háskóla Íslands erindi um möguleika Íslands til að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda og Hugi Ólafsson, skrifstofustjóri stefnumótunar og alþjóðamála í Umhverfisráðuneytinu erindi um vinnu að aðgerðaráætlun í loftslagsmálum og þáttöku Íslands í COP-15

Dr. Brynhildur Davíðsdóttir, dósent í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands stýrði vinnu sérfræðinganefndar umhverfisráðuneytisins um möguleika til að draga úr nettóútstreymi gróðurhúsalofttegunda á Íslandi, en skýrsla nefndarinnar kom út í júní á þessu ári. Brynhildur mun í erindi sínu fjalla um helstu niðurstöður nefndarinnar og aðferðafræðina sem beitt var.

Hugi Ólafsson er skrifstofustjóri á sviði stefnumótunar og alþjóðamála í umhverfisráðuneytinu. Hann er formaður verkefnisstjórnar ráðuneytisins um aðgerðaáætlun í loftslagsmálum og situr í samninganefnd Íslands vegna loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (UNFCCC). Hugi mun fjalla um vinnu að aðgerðaráætluninni og þátttöku Íslands í samningaviðræðum fyrir loftslagsráðstefnu Sþ í Kaupmannahöfn nú í desember.

Fyrirlestrana má sjá með því að smella á nöfn viðkomandi      

Brynhildur Davíðsdóttir        Hugi Ólafsson

 

Á döfinni

Morgunverðarfundur með fyrirtækjum um tungutak umhverfismála og umhverfisvæn skref. Nánar auglýst síðar.  


BBC - Umhverfis- og vísindafréttir