Þú ert hér: Forsíða Fréttir
  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size

Félag umhverfisfræðinga

IMG_7857.jpg

Félag umhverfisfræðinga

Dagur umhverfisins

Tileinkaður líffræðilegri fjölbreytni

Dagur umhverfisins er haldinn 25. apríl ár hvert en þann dag árið 1762 fæddist Sveinn Pálsson, fyrsti íslenski náttúrufræðingurinn. Hann var einna fyrstur til að hvetja til aðgerða gegn skógareyðingu á Íslandi og orðaði þá hugsun sem nú kallast sjálfbær þróun. Í ár var dagurinn tileinkaður líffræðilegri fjölbreytni.

Félag umhverfisfræðinga á Íslandi, í samstarfi við Fuglavernd og Umhverfisráðuneyti, bauð upp á gönguferð í kringum Reykjavíkurtjörn og Vatnsmýri undir leiðsögn Hallgríms Gunnarssonar og Ólafs Torfasonar hjá Fuglavernd og Haraldar Rafns Ingvasonar frá Náttúrfræðistofu Kópavogs þar sem fræðst var um líffræðilega fjölbreytni í og við tjörnina, þar á meðal fuglalíf og gróður. Góður fjöldi fólks mætti þennan dag og fræddist um vistkerfi Tjarnarinnar í mildu veðri.

Félag umhverfisfræðinga vill þakka þeim Hallgrími, Ólafi og Haraldi fyrir skemmtilega og fræðandi leiðsögn.

 

Málþing um sorpmál minni sveitarfélaga

Félag umhverfisfræðinga á Íslandi í samvinnu við Háskólasetur Vestfjarða efnir til málþings um sorpmál minni sveitarfélaga.

Málþingið verður haldið á Ísafirði 30. apríl. kl. 15-17

Sjá nánar Dagskrá málþings

 

Dagur umhverfisins 25. apríl

Tileinkaður líffræðilegri fjölbreytni

Dagur umhverfisins er haldinn 25. apríl ár hvert en þann dag árið 1762 fæddist Sveinn Pálsson, fyrsti íslenski náttúrufræðingurinn. Hann var einna fyrstur til að hvetja til aðgerða gegn skógareyðingu á Íslandi og orðaði þá hugsun sem nú kallast sjálfbær þróun. Í ár verður dagurinn tileinkaður líffræðilegri fjölbreytni.

Félag umhverfisfræðinga á Íslandi, í samstarfi við Fuglavernd og Umhverfisráðuneyti, býður upp á gönguferð í kringum Reykjavíkurtjörn og Vatnsmýri undir leiðsögn Hallgríms Gunnarssonar og Ólafs Torfasonar hjá Fuglavernd og Haraldar Rafns Ingvasonar frá Náttúrfræðistofu Kópavogs þar sem fræðst verður um líffræðilega fjölbreytni í og við tjörnina, þar á meðal fuglalíf og gróður.

Lagt af stað frá Norræna húsinu kl. 13:00 og 15:00.

Dagskrá á Degi umhverfisins má nálgast hér

 

Bloggar þú um umhverfið?

Ritstjórn vill benda félagsmönnum FUMÍ á nýjan lið á heimasíðu félagsins sem kallast Félagsmenn og er undir Tenglar

Þar er m.a tengill á hjóladagbók Björns H. Barkarsonar þar sem hægt er að fræðast um ferðalög hans til og frá vinnu, sjón er sögu ríkari.

Óskar ritsjórn eftir ábendingum um önnur álíka blogg félagsmanna. Ábendingar má senda á  This e-mail address is being protected from spambots, you need JavaScript enabled to view it

Ritstjórn

 
  • «
  •  Start 
  •  Prev 
  •  1 
  •  2 
  •  3 
  •  4 
  •  5 
  •  6 
  •  7 
  •  8 
  •  9 
  •  10 
  •  Next 
  •  End 
  • »
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Á döfinni

Morgunverðarfundur með fyrirtækjum um tungutak umhverfismála og umhverfisvæn skref. Nánar auglýst síðar.  


BBC - Umhverfis- og vísindafréttir